Skills Iceland

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color

SkillsIceland miðar að því að kynna og efla iðnmenntun á Íslandi og hvetja til alþjóðlegrar vitundar og samstarfs með skipulagningu Íslandsmóts iðngreina og þátttöku í alþjóðlegum mótum af sama toga.

Heim
Samtök um Íslandsmót iðn- og verkgreina stofnuð

Samtök um Íslandsmót iðn- og verkgreina og erlent samstarf við félög um keppnir var stofnað í Iðnskólanum í Hafnarfirði mánudaginn 15. nóvember.

Samtökin hafa vinnuheitið SkillsÍsland en verið er að vinna í því að finna íslenskt nafn.

 

Samtök um Íslandsmót iðn- og verkgreina og erlent samstarf við félög um keppnir var stofnað í Iðnskólanum í Hafnarfirði mánudaginn 15. nóvember.

Samtökin hafa vinnuheitið SkillsÍsland en verið er að vinna í því að finna íslenskt nafn.

Við þetta tilefni flutti mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir erindi. Lýsti hún ánægju með þetta framtak og taldi að keppnir væri góð aðferð til að kynna iðn- og verknám fyrir ungu fólki.

Einnig tók Jóhannes Einarsson skólameistari Iðnskólans til máls. Hann rakti nokkur atriði um sögu íslandsmótsins og þátttöku íslendinga í keppnum erlendis. Hvatti hann ráðherra til þess að hafa áhrif á að ríkisútvarpið sýndi þessum keppnum áhuga og sýndu frá þeim.

Markmið samtakanna eru að;

  • auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar
  • bæta ímynd iðn- og verkgreina
  • halda Íslandsmót iðn- og verkgreina annað hvert ár
  • vekja athygli á tækifærum sem felast í námi og starfi í þessum greinum
  • vera samstarfsaðili við erlenda aðila og samtök sem vinna á sama grunni

Í framhaldinu var stofnufundurinn haldinn.

Stofnendur eru;

Bílgreinasambandið, FBM, Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík, Iðnmennt, MATVÍS, Meistarasamband byggingarmanna, Rafiðnaðarsambandið, SAF, Samiðn, Samtök Iðnaðarins, SART og VM

Fyrstu stjórn skipa

Björn Ágúst Sigurjónsson formaður

Ólafur Jónsson

Þór Pálsson

Varamenn

Ingi Bogi Bogason

Georg Páll Skúlason

Skoðunarmenn

Níels Sigurður Olgeirsson

Erna Hauksdóttir

 

Viðburðir

« < February 2012 > »
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Næstu viðburðir

No events